Mig dreymir

Enginn leysir öll þau bönd sem ævin kann að flétta,
ég óska mér, en finn samt ekki leiðina til þín.
Ég er aðeins einn af þeim sem ekki kaus hið rétta,
má una hér og dunda við að fela tárin mín.

Væri ég frjáls,
væri ég frjáls
eins og fuglinn er
þá lægi leiðin til þín.

Mig dreymir, ég óska,
en það er engin stoð í því,
því mín örlög hafa spunnið vef
og fest mig honum í.

Mig dreymir, ég óska,
og það er eina huggun mín
og ef ætti ég mér vængi
ég flygi beint til þín,
—alla leið!

Ef ég gæti látið eins og lífið væri að byrja
þá leikur væri að þurrka burt öll villusporin mín.

Væri ég frjáls,
væri ég frjáls
eins og fuglinn er
þá lægi leiðin til þín.

Mig dreymir, ég óska,
en það er engin stoð í því,
því mín örlög hafa spunnið vef
og fest mig honum í.

Mig dreymir, ég óska,
og það er eina huggun mín
og ef ætti ég mér vængi
ég flygi beint til þín.

Mig dreymir, ég óska,
en það er engin stoð í því,
því mín örlög hafa spunnið vef
og fest mig honum í.

Mig dreymir, ég óska,
og það er eina huggun mín
og ef ætti ég mér vængi
ég flygi beint til þín,
—alla leið!



Credits
Writer(s): Jonas Fridrik Gudnason, Bjoergvin Halldorsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link