Ég Er Að Tala Um Þig

Sumt fólk hefur eitthvað sérstakt við sig
sem virkar þannig að það heillar þig.
Slíkt fólk, þú tekur eftir því hvar sem það fer,

Og einmitt um daginn mig henti þá
að ókunna stúlku mér litið varð á.
En þá gerðist eitthvað sérstakt inn í mér.

Ég er að tala um þig
ég er að tala um þig.
Þessi stúlka ert þú
þú - þú - þú.

Manstu þegar ég bauð þér fyrst út
er ég yrti á þig þú hrökkst í kút,
Svolítið smeyk en á endanum þú samþykktir það.

Og nú finnst mér eins og við höfum ávallt þekkst
það hefur eitthvað stórfenglegt gerst.
Eitthvað sem fyrir mér hefur breytt stund og stað.

Ég er að tala um þig...

Ef hægt er að segja um nokkurn mann
að ástina hann fann,
þá er það ég.
Allt sem þig snertir
það á svo vel við mig,
mér finnst þú stórkostleg.

Ég er að tala um þig...



Credits
Writer(s): Johann Georg Johannsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link