Stúlkurnar Á Internetinu
Þær búa alnetinu á
innlyksa hver í sinni skrá.
Þær eru fjarska fallegar
fullkomnlega stafrænar
og allir blíðu þeirra þrá.
Ég stundum leggst í leit að þeim,
læðupokast höndum tveim.
Og ef ég ramba á rétta slóð
og ef hún reynist vera góð
þá jafnvel sæki ég þær heim.
Stúlkurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Þær eru afskaplega sællegar að sjá
Þær liggja bara heima og hugga sig
og hafa alltaf tíma fyrir mig.
Og segja ekki nokkrum manni frá.
Allt þeirra líf er tölvutækt,
tilveran öll í netið flækt.
Og við sinn kísilbætta barm
þær bera hljóðan innri harm.
Og gráti þær þá gjörist netið hægt.
Stúlkurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Svo yndislega settlegar að sjá.
En finnst þeim ekkert vont að vera þar?
Að vera svona opinberaðar?
Skiptir máli hver er að horfa á?
Píurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu
Svo dásamlega saklausar að sjá.
Þær höfðu sjálfsagt eitthvað annað plan
en enduðu í Langtíburtistan,
yfirgefnar á ókunnugum skjá.
Skvísurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Svo fjarskalega fullnægðar að sjá.
En líf þeirra er ósköp berrassað
og líklega er ekkert verra en að
hafa gjörvalt mannkyn gónandi sig á.
innlyksa hver í sinni skrá.
Þær eru fjarska fallegar
fullkomnlega stafrænar
og allir blíðu þeirra þrá.
Ég stundum leggst í leit að þeim,
læðupokast höndum tveim.
Og ef ég ramba á rétta slóð
og ef hún reynist vera góð
þá jafnvel sæki ég þær heim.
Stúlkurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Þær eru afskaplega sællegar að sjá
Þær liggja bara heima og hugga sig
og hafa alltaf tíma fyrir mig.
Og segja ekki nokkrum manni frá.
Allt þeirra líf er tölvutækt,
tilveran öll í netið flækt.
Og við sinn kísilbætta barm
þær bera hljóðan innri harm.
Og gráti þær þá gjörist netið hægt.
Stúlkurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Svo yndislega settlegar að sjá.
En finnst þeim ekkert vont að vera þar?
Að vera svona opinberaðar?
Skiptir máli hver er að horfa á?
Píurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu
Svo dásamlega saklausar að sjá.
Þær höfðu sjálfsagt eitthvað annað plan
en enduðu í Langtíburtistan,
yfirgefnar á ókunnugum skjá.
Skvísurnar á Internetinu
þær ylja okkur í mesta hretinu.
Svo fjarskalega fullnægðar að sjá.
En líf þeirra er ósköp berrassað
og líklega er ekkert verra en að
hafa gjörvalt mannkyn gónandi sig á.
Credits
Writer(s): Bragi Valdimar Skulason
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
© 2024 All rights reserved. Rockol.com S.r.l. Website image policy
Rockol
- Rockol only uses images and photos made available for promotional purposes (“for press use”) by record companies, artist managements and p.r. agencies.
- Said images are used to exert a right to report and a finality of the criticism, in a degraded mode compliant to copyright laws, and exclusively inclosed in our own informative content.
- Only non-exclusive images addressed to newspaper use and, in general, copyright-free are accepted.
- Live photos are published when licensed by photographers whose copyright is quoted.
- Rockol is available to pay the right holder a fair fee should a published image’s author be unknown at the time of publishing.
Feedback
Please immediately report the presence of images possibly not compliant with the above cases so as to quickly verify an improper use: where confirmed, we would immediately proceed to their removal.