Loki
Nóttin kemur og nístir inn í bein,
nú í fjarska ég heyri hana gráta.
Elsku systir, sem alltaf varst svo hrein,
ekkert vildi ég fyrir koma láta.
Löngum stundum þar léku saman börn,
lítil systkin sem Óðinn hafði skapað.
Brást ég illa og Brynhildi hef tapað.
Loki!
Þetta er hans vilji.
Loki!
Veit þó ekki skilji.
Loki!
Tæra vildi taka
Loki!
trú, og hana þjaka.
Engan höfðum og alltaf vorum snauð,
ekkert virtist þó systkinunum granda.
Vissi ekki að vísan átti auð,
vesæll húki og hlusta á mig anda.
Börn hans Loka, ég barðist við þau öll,
batt og særði og kynntist sumum náið.
Hetjan þessi sem fer um víðan völl
er vesæll maður sem getur ekki dáið.
Loki!
Systur mína seldi.
Loki!
Sit ég undir feldi.
Loki!
Harma mun ég hefna.
Loki!
hatursloforð efna.
Tilveruna tryllingur skekur,
tregafleyg í hjarta þitt rekur.
Haldið þrengist,
Hildur engist.
Hráki snáksins andlitið þekur.
Endalaust munt þrautina þreyja,
þú skalt kveljast mest allra meyja.
Alla daga
illt mun naga
auma sál sem fær ekki að deyja.
Næra sinnið, heiðna hata,
heimskir Óðin lofa.
Tæra sálu árar ata,
aldrei skaltu sofa.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
Græsku beitum, sjaldan sefast
sorgir þegar vinnum.
Gæsku sína alltaf efast,
ekki duginn finnum.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
Sæta engra veldur vopni,
vondu udnir oki.
Vætta Miðgarðs augu opni,
Óðinn heitir Loki.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
nú í fjarska ég heyri hana gráta.
Elsku systir, sem alltaf varst svo hrein,
ekkert vildi ég fyrir koma láta.
Löngum stundum þar léku saman börn,
lítil systkin sem Óðinn hafði skapað.
Brást ég illa og Brynhildi hef tapað.
Loki!
Þetta er hans vilji.
Loki!
Veit þó ekki skilji.
Loki!
Tæra vildi taka
Loki!
trú, og hana þjaka.
Engan höfðum og alltaf vorum snauð,
ekkert virtist þó systkinunum granda.
Vissi ekki að vísan átti auð,
vesæll húki og hlusta á mig anda.
Börn hans Loka, ég barðist við þau öll,
batt og særði og kynntist sumum náið.
Hetjan þessi sem fer um víðan völl
er vesæll maður sem getur ekki dáið.
Loki!
Systur mína seldi.
Loki!
Sit ég undir feldi.
Loki!
Harma mun ég hefna.
Loki!
hatursloforð efna.
Tilveruna tryllingur skekur,
tregafleyg í hjarta þitt rekur.
Haldið þrengist,
Hildur engist.
Hráki snáksins andlitið þekur.
Endalaust munt þrautina þreyja,
þú skalt kveljast mest allra meyja.
Alla daga
illt mun naga
auma sál sem fær ekki að deyja.
Næra sinnið, heiðna hata,
heimskir Óðin lofa.
Tæra sálu árar ata,
aldrei skaltu sofa.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
Græsku beitum, sjaldan sefast
sorgir þegar vinnum.
Gæsku sína alltaf efast,
ekki duginn finnum.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
Sæta engra veldur vopni,
vondu udnir oki.
Vætta Miðgarðs augu opni,
Óðinn heitir Loki.
Ég er Loki, ég er Loki,
þú ert undir mínu oki,
Hilmar Baldursson.
Credits
Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Axel Arnason, Baldur Ragnarsson, Snaebjoern Ragnarsson, Bjoergvin Sigurdsson, Jon Geir Johannsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Other Album Tracks
© 2024 All rights reserved. Rockol.com S.r.l. Website image policy
Rockol
- Rockol only uses images and photos made available for promotional purposes (“for press use”) by record companies, artist managements and p.r. agencies.
- Said images are used to exert a right to report and a finality of the criticism, in a degraded mode compliant to copyright laws, and exclusively inclosed in our own informative content.
- Only non-exclusive images addressed to newspaper use and, in general, copyright-free are accepted.
- Live photos are published when licensed by photographers whose copyright is quoted.
- Rockol is available to pay the right holder a fair fee should a published image’s author be unknown at the time of publishing.
Feedback
Please immediately report the presence of images possibly not compliant with the above cases so as to quickly verify an improper use: where confirmed, we would immediately proceed to their removal.