Haustið á liti

Haustið á liti sem málverk hafa ekki
Leggjast á sálina, færa þig í hlekki
Rakir litir svo dökkir og djúpir
Stundum svo harðir, stundum svo mjúkir
Ég öskra inn í nóttina, svarið er bergmál
Fast að hún hvíslar í augum logar bál
Mjúkar varir færa mér frið
Tímin þar á eftir aðeins falleg bið
Í öruggu skjóli milli tveggja handa
Ég hjúfra mig dýpra þar til ég hætti að anda
Týni mér í hlýjunni, skynja ekki neitt
Nema hjartslátt okkar beggja sem rennur í eitt
Vindarnir að norðan fara brátt að blása
Þú skilur, haustið var aðeins pása
Ég sé þið í anda, vagnarnir svo rjóðir
Með vagninn á undan, ný orðin móðir
Ég vona að veturinn verið þér góður
Þegar gullið þitt sefur, blási hann hljóður
Haustið kemur aftur með litina djúpu,
litina dökku, litina mjúku



Credits
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link