Yfir hóla og yfir hæðir

Yfir hóla og yfir hæðir
langar mig að sýna þér.
Bakpokar og gönguskór,
lítinn stað sem ég hef fundið mér

Yfir hóla og yfir hæðir

Yfir hóla og yfir hæðir
kræklótt lyggur okkar leið,
bældur mosi, angandi lyng
Við horfum hugfangin á hrafnaþing.

Yfir hóla og yfir hæðir.

Yfir hóla og yfir hæðir,
sérðu það sem ég sé?
Lækjarspræna og laufið græna,
ég færi þér mín helgu vé.

Yfir hóla og yfir hæðir.



Credits
Writer(s): Svavar Knutur Kristinsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link