Það geta ekki allir verið gordjöss

Líkt og fuglinn Fönix rís
fögur lítil diskódís - upp úr djúpinu
gegnum diskóljósafoss.
Ég er flottur, ég er frægur,
ég er kandís kandífloss.

Ú, ú, ú, ú, ú, ú...

Söngröddin er silkimjúk
sjáið bara þennan búk - instant klassík,
hér er allt á réttum stað.
Ég er fagur, ég er fríður,
ég er glamúr gúmmelað.

A, a, a, a, a, a, a, a, a.

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir verið töff.
Það geta' ekki allir orðið fabjúlöss
eins og ég.

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir meikað' það eins og ég.

A, ha, ha – a, a, a... – ú, ú, ú...

Húðinni í Díor drekkt,
dressið óaðfinnanlegt - hvílík fegurð,
hvað get ég sagt?
Ég er dúndur, ég er diskó,
það er mikið í mig lagt.

Það geta' ekki allir verið gordjöss...

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir verið hit.
Það geta' ekki allir orðið fabjúlöss
eins og ég.

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir meikað' það eins og ég.

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir verið hann.
Það geta' ekki allir orðið fabjúlöss
eins og ég.

Það geta' ekki allir verið gordjöss.
Það geta' ekki allir feikað' það eins og ég.

A, ha, ha...



Credits
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link