Lifði og dó í Reykjavík

Hún var fædd fyrir seinna stríð
Og um sína tíð
Séð hefur sitt og hvað

Sótti böllin hér áður fyrr
Ung og falleg kona
Fékk ekki að sitja kyrr

Inni í skáp hanga upp á slá
Gömlu kjólarnir
Kemst ekki í dag í þá

Í þeirri borg sem er engri lík
Áttu börn og buru
Brennandi rómantík

Lifði og dó í Reykjavík

Lífið varð allt í einu strit
Og í stuttu máli
Sagt ekki nokkurt vit

Glöddu þá gamlar svipmyndir
Gleymdir draumar
Allir vongóðu biðlarnir

Inni í skáp hanga upp á slá
Gömlu kjólarnir
Kemst ekki í dag í þá

Í þeirri borg sem er engri lík
Áttu börn og buru
Brennandi rómantík

Lifði og dó í Reykjavík

Inni í skáp hanga upp á slá
Gömlu kjólarnir
Kemst ekki í dag í þá

Í þeirri borg sem er engri lík
Áttu börn og buru
Minnkandi rómantík

Lifði og dó í Reykjavík
Lifði og dó í Reykjavík
Lifði og dó í Reykjavík



Credits
Writer(s): Magnus Eiriksson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link