Fallið lauf

Fallið lauf undir fótum mér
Minningin dauf er það sem óttast ég
Ég lít höfði er ég hugsa hlýtt um þig
Og líkt og fallið lauf
Færist kuldinn um mig

Minning þín stendur eftir hér
Er vindur hvín finnst ég heyr'í þér
Það er sárt að kveðja elsku hjartans vinur minn
En með þungum harm
Ég kveð þig um sinn

Ég hugsa' um þig og ég sé
Minningar sem elska ég
Og sama hvert ég mun fara veit ég
Að þú vakir yfir mér
Þú vakir yfir mér

Fallið lauf er fokið burt
Það þögnina rauf þó svo smátt og þurrt
En það mun skilja sporin eftir sig
Þegar fellur lauf,
Þegar fellur lauf,
Þegar fellur lauf sé ég þig



Credits
Writer(s): Paolo Nutini
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link