Ingimar

Það var um kvöld ég gerði stam í hefndarhug ég harminn bar
Ég svikinn var ég sá þig þar í faðmlögum við Ingimar

Þú þóttist mín þú sagðir það en hamingjan var ekki þar
Og Ingimar í þínum faðm ég fylltist við og hnífinn fann og blóðið rann

Þetta var hræðilegt morð og ógleymanleg var sú aðkoma
Sama kvöld fór maður fyrir borð og ég þurfti að kalla út liðsauka

Í dimmu sundi úr alfaraleið augljóst að hér voru ástríður í spili
Ég þóttist vita hvað málinu leið kvað strax upp úrskurð minn í bili

Það var um kvöld ég gerði stam í hefndarhug ég harminn bar
Ég svikinn var ég sá þig þar í faðmlögum við Ingimar

Þú þóttist mín þú sagðir það en hamingjan var ofviða
Og ingimar í þínum faðm ég fylltist við og hnífinn fann og blóðið rann

Þetta var hræðilegt morð mikil sorg í sinni mér var
Ekki stuna ekki orð enda var ekki kjaftur þar

Í dimmu sundi úr alfararleið augljóst að ástríðan var hér í spili
Til heljar var þá leiðin greið hér um bil og með millibili

Þetta var hræðilegt morð að hér þurfti frekari eftirgrennslan
Illmennska af verstu gerð og yfir öllu sjálf síldarbrennslan

Vopnið fórnarlambinu var um megn óljóst var á hvern fyrst var ráðist
Geranda sker mikið mikið skert morðinginn á burt og aldrei hann náðist

Ég náinn er ég missti líf því Ingimar hann myrti mig
Frá skrítnum stað ég horfi á hann Ingimar að faðma hana
Ég dáinn er ég missti líf því Ingimar hann myrti mig
Ég kem því nú frá skrítnum stað í faðmlögum við Ingimar

Ingimar, Ingimar, Ingimar, Ingimar
Ingimar, Ingimar, Ingimar, Ingimar
Ingimar, Ingimar, Ingimar, Ingimar
Það var Ingimar, Ingimar, Ingimar
Það var Ingimar



Credits
Writer(s): Arnar Geir Omarsson, Sigurjon Kjartansson, Ottar Olafur Proppe, Flosi Thorgeirsson, Sigurdur Bjoern Bloendal
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link