Ég vil Fara Upp Í Sveit

Ég vil fara, upp í sveit,
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að allir elska kaupa konur.

Og í jeppa oft vill skreppa
ýmislegt mun gerast þar um
sumar kvöldin.
Þó með einum, oft í leynum
ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt.
Og mig dreymir oft um það,
sem þar gerist þegar sólin, rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engu lík.

Um ljósa nótt við leiðumst okkar veg,
Við lækinn bak við ásinn þú og ég,
og hvað það verður hvíslað veit ei neinn.
Nema lækurinn einn, hann hlustar einn.

Ég vil fara, upp í sveit,
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að allir elska kaupa konur.

Og í jeppa oft vill skreppa
ýmislegt mun gerast þar um sumar kvöldin.
Þó með einum, oft í leynum
ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt.
Og mig dreymir oft um það,
sem þar gerist þegar sólin, rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engu öðru lík
Upp til heiða, inn til dala - liggja okkar
tveggja spor



Credits
Writer(s): Jon Sigurdsson, Carasella Carasella
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link