Á Sprengisandi

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn
Rennur sól á bak við Arnarfell
Hér á reiki' er margur óhreinn andinn
Úr því fer að skyggja á jökulsvell

Drottinn, leiði drösulinn minn
Drjúgur verður síðasti áfanginn
Drottinn, leiði drösulinn minn
Drjúgur verður síðasti áfanginn

Þei þei, þei þei! Þaut í holti tófa
Þurran vill hún blóði væta góm
Eða líka einhver var að hóa
Undarlega digrum karlaróm

Útilegumenn í Ódáðahraun
Eru kannski' að smala fé á laun
Útilegumenn í Ódáðahraun
Eru kannski' að smala fé á laun

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn
Rökkrið er að síga' á Herðubreið
Álfadrotting er að beisla gandinn
Ekki' er gott að verða' á hennar leið

Vænsta klárinn vildi' ég gefa til
Að vera kominn ofan í Kiðagil
Vænsta klárinn vildi' ég gefa til
Að vera kominn ofan í Kiðagil

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn
Rennur sól á bak við Arnarfell
Hér á reiki' er margur óhreinn andinn
Úr því fer að skyggja á jökulsvell

Drottinn, leiði drösulinn minn
Drjúgur verður síðasti áfanginn
Drottinn, leiði drösulinn minn
Drjúgur verður síðasti áfanginn



Credits
Writer(s): Sigvaldi Kaldalons, Oskar Thor Arngrimsson, Trausti Laufdal Adalsteinsson, Grimur Thomsen, Baldvin Albertsson, Oddur Ingi Thorsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link