Treystu á mig

Ég mun fylgja þér, alla leið
Mmm... þú mátt trúa því
Og hvernig sem allt fer, mun leiðin greið
Mmm... já ég lofa því

Þau munu fella þungan dóm
En það munu verða orðin tóm

Hér er mín hönd
Ég mun leiða þig í önnur lönd
Treystu á mig því ég elska þig

Þá draumar okkar, vaxa hratt
Mmm... í ást og trú
Og síðan fáum gjöf, ég segi satt
Mmm... við verðum bráðum þrjú

Hér er mín hönd
Ég mun leiða þig í önnur lönd
Þú munt sjá
Nýja veröld sem við eigum tvö og þá

Allt sem er og skiptir öllu máli
Ert þú og ég
Og fólk mun stoppa, dæma, benda, finna að
Við hugsum ekki um það

Hér er mín hönd
Ég mun leiða þig í önnur lönd
Þú munt sjá
Nýja veröld sem við eigum tvö og þá

Treystu á mig, því ég elska þig
Úú... treystu á mig, því ég elska þig



Credits
Writer(s): Ragnar Olafsson, Ragnheidur Bjarnadottir, Idunn Asgeirsdottir
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link