Dagur Og Nótt

Töfrandi, jafnframt seiðandi
Sem og árstíðir, ertu mín
Áralöng eru tímabil
Sem þú fyllir mig uppá nýtt
Alvarleg, samt svo gefandi
Allar aðstæður finna frið
Átökin virðast hjómið eitt
Er þú opnar þig uppá nýtt
Dagur og nótt virðast renna' í eitt
Sama hvað gerist þú færð mér breytt
Í stormi' eða logni ég finn minn frið, þú ert himininn
Himininn

Dreymandi eru orðin þín
Er þú tjáir þig við mig
Sannindi, allar meiningar
Svífa inn til mín, inná við
Staðreyndir sem og rökleysur
Finna farveg sinn, hér um bil
Lifna við bjartir logarnir
Inní húminu þér við hlið
Dagur og nótt virðast renna' í eitt
Sama hvað gerist þú færð mér breytt
Í stormi' eða logni ég finn minn frið
Þú ert himininn
Himininn
Himininn

Dagur og nótt virðast renna' í eitt
Sama hvað gerist þú færð mér breytt
Í stormi' eða logni ég finn minn frið
Þú ert himininn
Dagur og nótt virðast renna' í eitt
Sama hvað gerist þú færð mér breytt
Í stormi' eða logni ég finn minn frið
Þú ert himininn
Himininn
Himininn



Credits
Writer(s): Einar ágúst, Vignir Snær Vigfússon
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link