Jól undir súð

Á leið ofan núr Fellum, við ókum undir brú
í svörtum satín jökkum, á station bíl við þrjú
Þá byrjaði að snjóa, við ræddum um kúngfú
Ég rétti þér hönd mína, en þá hrópaðir þú

Jól upp í Fellum, Jól út í í bíl
Jól undir stýri, Jól á ljótum jökkum
Jól eru hraðahindrun, Jól eru undir brú
Jólin eru samt eiginlega - bara þú

Við keyptum frosinn kalkún, Á tilboði útí Krambúð
Barnið grét í bílstólnum, með bólgna slímhúð
Við náðum niðrí í Hlíðar, Skepna útötuð í snúð
Snýttu honum á þessu, Hrópaðir þú

Jól niðri í Hlíðum, Jól í risíbúð
Jól undir slefsmekkjum, Jól undir slímhúð
Jólin eru kalkúnn, Jólin eru út í búð
Jólin eru samt eiginlega, bara þú

Yfir volgan jafning, múskati muldir þú
Straukst mér um vangann, Afmyndaðan af bjúg
Settum plötu á fóninn, Þú baðst um Erykuh Badu
Ég neitaði snarlega, Og setti á U2

Jól eru múskat, Jólin er í bjúg
Jól í augum Bono, Jólin eru í uppstúf
Jólin eru undir súð, Jólin eru U2
Jólin eru samt eiginlega, bara þú

Jólin eru útbrot á nokkuð sléttri húð
Jólin eru samt eiginlega bara þú
Jólin eru Ítalir með þunnan bleikan klút
Jólin eru límmiðar á kviðnum á marhnút
Jólin eru líkaminn á lösnum strút
Jólin eru samt eiginlega bara þú
Jólin eru síðdegis í lyftu utanhúss
Jólin eru allstaðar, jólin eru djús
Jólin eru innileg, aðeins of innilegt knús
Jólin eru samt eiginlega bara þú



Credits
Writer(s): Olafur Josephsson, Sveinn Haukur Magnússon
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link