Í stormi

Í brjósti mér, brennur von um betri tíð.
Ég óska mér, og sú ósk fær óðum líf.
En sama hvert litið er, þar birtistu mér og ég
sé mátt þinn hreyfa við rödd sem stækkar ótt
og brýtur sig inn í hjörtu og hug fólks.
Það lifnar við fölnuð ást ef við höfum hátt.
Nú vindarnir breytast brátt.

Von sem ætíð lifir heitt, í stormi stöndum öll sem eitt.
Okkar hjörtu slá í takt er dimma tekur.
Vonin ætíð lifir heitt, í stormi stöndum öll sem eitt.
Okkar hjörtu slá í takt er dimma tekur.

Napur sársaukinn næðir um sál.
Sest að í huganum þungur sem stál.
Dregur mig dýpra frá degi til dags.
Ég kvíði sérhvers sólarlags.
Ég horfi'á hörmungar, táranna flóð.
Brýst út úr höfðinu, brátt finn ég nýja slóð.
Stend af mér þennan storm, það birtir bráðum til.
Nú horfi ég fram á við.

Von sem ætíð lifir heitt, í stormi stöndum öll sem eitt.
Okkar hjörtu slá í takt er dimma tekur.
Nú vorar huga mínum í
og framtíðin er aftur skýr.

Von sem ætíð lifir heitt, í stormi stöndum öll sem eitt.
Okkar hjörtu slá í takt er dimma tekur.
Já vonin ætíð lifir, og sama hvað dynur yfir.
Okkar hjörtu, slá í takt.
Þau slá af ást.

Í brjósti mér, brennur von um betri tíð.
Ég óska mér, og sú ósk fær óðum líf.
En sama hvert litið er, þig allstaðar sé.



Credits
Writer(s): Fannar Freyr Magnusson, Juli Heidar Halldorsson, Marino Geir Lilliendahl, Thorunn Erna Clausen
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link