Ógleði

Allt visnar í höndum mér
Sál mín og allt mitt geð
Allt gránar og angrið sker
Þyngist á herðum mér

Hlandandi standandi andandi ógeði
Hrínandi vínandi þyrmandi ógleði
Brotnandi, grotnandi, spúandi ógeði
Hrínandi vínandi þyrmandi ógleði

Allt sem skalf brotnaði eins og gler
Það sem var inni í mér – það var ekki ég

Allt sem fyr augu ber
Fúnaði undan mér
Hjarta mitt fjötrað er
Finn ég þótt blindur sé

Hlandandi standandi andandi ógeði
Hrínandi vínandi þyrmandi ógleði
Brotnandi, grotnandi, spúandi ógeði
Hrínandi vínandi þyrmandi ógleði

Allt sem skalf brotnaði eins og gler
Það sem var inni í mér – það var ekki ég

Þú ert svo gjörsamlega
Staðinn í stað
Að þú sérð ekki lengur
Keðjurnar, hlekkina,
Í hverjum þú danglar



Credits
Writer(s): Einar Hrafn Stefansson, Matthias Tryggvi Haraldsson, Klemens Nikulasson Hannigan
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link