Vaðandi þurrt

Lagði tunglið í laut
Ljáði stjörnunum brag
Setti á himininn skraut
Sama dag eftir dag

Tók mér haf undir hönd
Henti fjöllunum burt
Fór um ókunnug lönd
Oftast vaðandi þurrt

Fleygði spilum á borð
Og á borðið var lagt
Þetta einasta orð
Sem að aldrei var sagt

Gekk um glóandi hraun
Glaður dokaði við
Þessa alsherjar raun
Sem var öll fyrir þig



Credits
Writer(s): Julius Robertsson, Asgeir Einarsson, Gudmundur Jonsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link