Smellum saman

Öll við þráum sannarlega tryggð og traust
Við trúum því að öryggið sé endalaust
En hamingjan er brothætt þegar hættan steðjar að
Svo er nú það

Lukkan stýrir okkur yfir lífsins veg
Léttúðin er sannarlega hættuleg
Við förum okkur hægt meðan við finnum rétta slóð
Á þessum skrjóð

Ég býð þér upp í bílinn með mér
Og við brunum strax af stað
Við eigum okkur lítinn leynistað

Og núna finn ég að við smellum saman
Já við smellum saman og
Farsældin til ferðalaga
Fylgir okkur alla daga
Smellum saman
Já við smellum saman og
Lífið aldrei beitir brellum
Bara ef við alltaf smellum saman

Nýtum þennan yndislega dýrðardag
Og drífum okkur tvö í þetta ferðalag
Á þjóðveginum mætir okkur þoka, regn og snjór
Og hann er mjór

Förum gegnum skafrenninginn hönd í hönd
Hinum megin sólarljós og ókunn lönd
Við bundin erum ástinni með beltin þéttingsföst
Og það er möst

Ég býð þér upp í bílinn með mér
Og við brunum strax af stað
Við eigum okkur lítinn leynistað

Og núna finn ég að við smellum saman
Já við smellum saman og
Farsældin til ferðalaga
Fylgir okkur alla daga
Smellum saman
Já við smellum saman og
Lífið aldrei beitir brellum
Bara ef við alltaf smellum saman

Þú og ég
Við höldum heim á leið
Við smellum saman bæði tvö
Hjörtun okkar smella saman bæði tvö

Þú og ég
Við höldum heim á leið
Við smellum saman bæði tvö
Hjörtun okkar smella saman bæði tvö
Bæði tvö, bæði tvö

(Smellum saman)
(Já við smellum saman og)

Farsældin til ferðalaga
Fylgir okkur alla daga
Smellum saman
Já við smellum saman og
Lífið aldrei beitir brellum
Bara ef við alltaf smellum saman

Smellum saman
Já við smellum saman og
Farsældin til ferðalaga
Fylgir okkur alla daga
Smellum saman
Já við smellum saman og
Lífið aldrei beitir brellum
Bara ef við alltaf smellum saman



Credits
Writer(s): Snaebjorn Ragnarsson, Hafsteinn Thrainsson, Kristinn Oli Haraldsson, Starri Snaer Valdimarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link