Don't You Know (íslenska útgáfan)

Í hvert sinn er sólin rís
Í austri eftir dimmar nætur
Hugsa ég fyrst um þig
Og brosið bjarta sem þú gladdir mig alltaf með
Minningar sem sækja að mér nú
Ég og þú

Segðu mér: "Ég finn fyrir þér", úúú
Hvert sem ég fer, fer, fer
Hvar sem er ég finn fyrir þér, úúú
Hvert sem ég fer, fer, fer

Er kvöldar og sólin sest
Þögnin er sterkari en áður
Því að ég óska þess
Í eitt sinn enn þú gætir hvíslað
Í eyru mér orðin þín sem herja á mig nú
Ég og þú

Segðu mér: "Ég finn fyrir þér", úúú
Hvert sem ég fer, fer, fer
Hvar sem er ég finn fyrir þér, úúú
Hvert sem ég fer, fer, fer



Credits
Writer(s): Mar Gunnarsson, Isold Wilberg Antonsdottir
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link