Ljósið

Skrýtið hvernig allt nú er
Ég skoða enn og aftur myndirnar af þér
Í skotum hugans búa minningar um allt það
Sem ljúft var

Um bjart vor
Mín gæfuspor

Þú leiddir mig inní ljósið
Hvar lífið dafnar alltaf best
Þú þráðir alla tíð ljósið
Nú er sólin reyndar sest
En samt er sem þú lýsir mér

Gerist margt á langri leið
Líka sumt sem getur valdið ringulreið
Það veltur þangað víst sem vera vill um flest
En ég veit nú svo vel

Þú leiddir mig inní ljósið
Hvar sem lífið dafnar alltaf best
Þú þráðir alla tíð ljósið
Nú er sólin reyndar sest
En samt er sem þú lýsir mér enn

Í sandi spor
Senn kemur vor

Þú leiddir mig inní ljósið
Þar sem lífið dafnar alltaf best
Þú þráðir alla tíð ljósið
Nú er sólin rjóða sest
En samt er sem þú lýsir minn veg

Þú ert ennþá hér



Credits
Writer(s): Birgir Steinn Stefansson, Andri Thor Jonsson, Stefan Hilmarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link