Stundum

Stundum er ég sterk,
og stundum get ég ekkert gert svo ég
sit og sakna og syrgi og sé
mikið eftir þér

Stundum er ég leið,
stundum man ég ekkert hvað var að
spyr mig hvernig ég gat sært
allt sem var mér kært

Stundum er ég stolt,
stundum er ég viss um hvernig fór
klappa mér á bakið mitt
hætti að hugsa um þitt

Stundum er ég sár,
ég velti stundum fyrir mér hvort þér
líði betur eða verr
án mín eða með

Stundum er ég góð,
stundum get ég samið ljóð um eitthvað annað en þig,
fléttað um það fallegt lag,
tókst það ekki' í dag



Credits
Writer(s): Hildur Stefansdottir, Una Torfadottir
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link