Dansa meira

Það spyr mig enginn hvar ég sofna í nótt
Sofnaði á verðinum
Það spyr mig enginn hvað þig dreymir í dag
Ég veit ekki hvernig ég ætti að hafa
Áhrif á þínar gjörðir
Vil ekki hafa áhrif á þínar gjörðir
Og nóttin færist nær
Ég er búin að fá nóg af brostnum væntingum
Er nóttin einhvers virði að dreyma í dag?
Ég veit ekki hvernig ég mun höndla það
En ég held bara áfram
Þúsund möguleikar
En ég held bara áfram
Ein leið áfram
Ég dansa og ég dansa meira
Ég dansa í nótt til að gleyma
Og ég skal dansa í alla nótt
Það tekur tíma að læra að treysta á ný
Opna hjarta sitt
Og takast á við slæmu ávanana
Breyta og segja skilið við þá
Því ég ætla að dafna
Segja skilið við þá
Ég á skilið að dafna
Já að dafna
Og ég dansa og ég dansa meira
Ég dansa í nótt til að gleyma
Og ég skal dansa í alla nótt

Ég á svo marga stuðningsmenn sem að styðja við bakið mitt
Það er ekkert að stoppa mig nema hausinn á sjálfri mér
Passar margbrotna hjartað mitt, vafði það inn í bómull
Föst á skipi í stormi en ég vil alltaf vera skipstjórinn

Já ég dansa og ég dansa meira
Dansa í alla nótt
Já ég dansa og ég dansa meira
Dansa í alla nótt
Já ég dansa og ég dansa meira
Dansa í alla nótt
Já ég dansa og ég dansa meira
Dansa í alla nótt
Það er ekkert að stoppa mig
Það er ekkert að stoppa mig



Credits
Writer(s): K.óla
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link