Ekkert Allsstaðar

í gegnum skýjagljúfur, horfi á lífið smátt
hef aldrei nokkurn tímann áður flogið svona hátt
og ég dregst bara með því sem er að gerast
hef enga stjórn á neinu, mun með vindunum berast
allt sem koma skal er það sem koma þarf já

það sem var svo plagandi er nú líflaust fyrir neðan mig
svo ómerkileg, lítil smáatriði
ég þurfti að hverfa til að fá að finna þig aftur
tómið sem ég bjó í þangað til ég var fæddur
fallegi friður, það sem ég hef elt þig

ég er að kafna
ég finn ekki neitt
byrja að dofna
ég finn ekki neitt
strengurinn rofnar
ég finn ekki neitt
allt sem ég þarf
er ekkert allsstaðar

lljósin blá dansa fyrir framan mig
þau útiloka allt sem er utanaðkomandi
hélt að ég myndi hrapa en svo kom fyrir ekki
sé spegilmynd af sálu sem að ég þekki
biður mig að anda
minnir mig á

að ég er að kafna
ég finn ekki neitt
byrja að dofna
ég finn ekki neitt
strengurinn rofnar
ég finn ekki neitt
allt sem ég þarf
er ekkert allsstaðar

ekkert allsstaðar



Credits
Writer(s): Ragnar Solberg Rafnsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link