Það er myrkur úti

Það er myrkur úti
Ekki hafa hátt
Og leiðin inní hjartað
Er opin uppá gátt
Ekki fara gráta
Né þig grafa undir sæng
Gæskan mun passa þig
Og geyma undir væng

Verði þér allt að sólu
Það fer allt vel
Mundu bara sýna öllum
Á veginum vinarþel

Gæskan mun gæta þín
Gleymdu aldrei því
Einn daginn ertu farin
Aftur frjáls á ný
Byrjaðu gönguna
Þó þú vitir ekki hvar
Hjartað mun alltaf eiga
Við öllum spurningum svar

Netið er þéttriðið
Þú sleppur ekki í gegn
Þar ráfa áfallahjarðir
Þar fellur bleksvart regn
Þar er lítið um ljós
Ekki leggjast undir sæng
Gæskan mun passa þig og
Geyma undir sínum væng



Credits
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link