Í Andesfjöllunum

Á ferð minni um Andes ég hitti gamlan vin
Sem yrkti akurinn í fjöllunum

Hann sagðist eiga kærustu, kofa í hlíðinni
Hann byggi þar með lamadýrunum

Ég ætla að verða shaman, lækna ýmis mein
Þjóna öndunum

Rækta ayahuasca í fjallaloftinu
Halda ceremóníur

Ég kærustuna hitti, hún rétti coca-lauf
Fram með báðum höndunum

Hún heilsaði á quechua, og sagði mér
Inti brosir við þér

Hann vildi verða shaman, lækna ýmis mein
Þjóna öndunum

Rækta ayahuasca í fjallaloftinu
Halda ceremóníur

Hann vildi verða shaman, lækna ýmis mein
Þjóna öndunum

Rækta ayahuasca í fjallaloftinu
Halda ceremóníur



Credits
Writer(s): Einar Teitur Bjoernsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link