Allt Er Eitthvað

Það er eitthvað
Hérna inni
Sem er falið
Sem er týnt og niðurgrafið
Oní svaðið
Grefur sig í huga mér

Það er einhver þörf á að fyrirgefa hér

Það er eitthvað
Sem er horfið
Og þó ég vinni
Og þó ég aldrei látum linni
Inní minni
Sálu er samt aldrei ró

Það er einhver þörf á að grisja þennan skóg

Það er alltaf eitthvað

Það er eitthvað
Alveg þrotið
Sem ég þráði
Sem að stríð ég fyrir háði
Og því náði
En naut þess svo sem aldrei nóg

Það er einhver sem að djöfla hingað dró

Það er eitthvað
Alltaf eitthvað
Sem ég þrái
Sem ég set á stall og dái
Þó svo ég fái
Þá fæ ég aldrei fangað það

Það er einhver þörf á að sætta sig við það

Það er alltaf eitthvað
Það vantar alltaf eitthvað



Credits
Writer(s): Jonas Sigurdsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link