Út að heimsenda

Ætlaði að syngja þér lag
en raddböndin rifnuðu.
Ætlaði að spila það
en strengirnir slitnuðu.
Ætlaði að hvísla að þér
en vafðist tunga um tönn.
Ætlaði að gefa af mér
en þú varst of góðu vön.

Það er sama hvað,
verð aldrei það sem þú leitar að.
Ég vildi ég vissi bara hvað þyrfti
svo eignist ég þér í hjarta stað.

Ef færi ég út að heimsenda,
myndi ég þig þá finna þar?
Myndir þú þarna eftir mér bíða
og vísa mér réttu leiðina?

Ef færi ég út að heimsenda,
myndi ég þig þá finna þar?
Myndir þú þarna eftir mér bíða
og vísa mér réttu leiðina?

Langar að hafa þig hér
en ég er enn langt þér frá
Langar að segja þér
óralangt við gætum náð
Langar að halda í þig
og finna þig halda í mig
Langar að vita til þess
allt gangi upp fyrir rest

Það er sama hvað,
ég verð aldrei það sem þú leitar að.
Ég vildi ég vissi bara hvað þyrfti
svo eignist ég þér í hjarta stað.

Ef færi ég út að heimsenda,
myndi ég þig þá finna þar?
Myndir þú þarna eftir mér bíða
og vísa mér réttu leiðina?

Ef færi ég út að heimsenda,
myndi ég þig þá finna þar?
Myndir þú þarna eftir mér bíða
og vísa mér réttu leiðina?

Ef færi ég út að heimsenda,
myndi ég þig þá finna þar?
Myndir þú þarna eftir mér bíða
og vísa mér réttu leiðina?



Credits
Writer(s): Kiasmos, Friðrik Dór
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link