Söngur Kaspars

Eitt sinn fór ég vegi allrar veraldar
með vinum mínum Melkíor og Baltasar.
Vaskir vitringar
sem vildu kanna hvar
upphaflega ædolstjarnan var.
Það blundaðí mér ferðaglaður frumhippi.
Við fórum þetta meira svona í flippi.
Lágum í tjöldum
með leiguúlföldum
á ferðabransans fyrsta ródtrippi.
Það var fyrir langa löngu,
langa langa langa löngu
en sagan hefur aldrei máttinn misst.
Það var fyrir langa löngu,
langa langa langa löngu.
Það var svona korter fyrir Krist.
Við römbuðum á fjárhús á AirBnB
og barnið reyndist einmitt vera inni í því.
Við æddum þangað inn
og endurlausnarinn
fékk ýmisskonar dót úr Duty Free.
Núna vita allir hver hann Jesús var
en enginn hvað þeir hétu þessir úlfaldar.
Því það var fyrir langa löngu,
langa langa langa löngu
en sagan hefur aldrei móðinn misst.
Það var fyrir langa löngu,
langa langa langa löngu.
Það var sirka korter fyrir Krist.



Credits
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link