Ég vil Fara Upp Í Sveit

Ég vil fara, upp í sveit
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að þar mun finna kaupakonur.
Og í jeppa oft vill skreppa
ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin.
Þó með einni oft í leyni
þó ég fari það mig skaðað getur ekki neitt.
Og mig dreymir oft um það,
sem þar gerist þegar sólin,
rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engu lík.
Um ljósa nótt við leiðumst okkar veg,
Við lækinn bak við ásinn þú og ég,
og hvað það verður hvíslað veit ei neinn.
Nema lækurinn einn, hann hlustar ei.
Ég vil fara, upp í sveit
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að þar mun finna kaupakonur.
Og í jeppa oft vill skreppa
ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin.
Þó með einni oft í leyni
þó ég fari það mig skaðað getur ekki neitt.
Og mig dreymir oft um það,
sem þar gerist þegar sólin,
rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engu öðru lík.
Upp til heiða, inn til dala
liggja okkar tveggja spor.



Credits
Writer(s): Jon Sigurdsson, Carasella Carasella
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link