Eitt sumar á landinu bláa

Arídú arídúradei, arídú arídáa
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
Eitt sumar á landinu bláa

Þeir íslensku segja víst um hann margt
Af óhróðri miðlungi sönnum
Því allt það sem hann gat hafði hann gert til þess
Að gera þá aftur að mönnum

Arídú arídúradei, arídú arídáa
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
Eitt sumar á landinu bláa

En þjóð sú með andlitin armæðufull
Sem ofan á bringuna hanga
Mun ef til vill seinna meir eignast menn
Sem uppréttir kjósa að ganga

Arídú arídúradei, arídú arídáa
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
Eitt sumar á landinu bláa

Og íslands klukkur þann dýrðar dag
Til dýrðar Jörundi hringja
Og lýðurinn uppi á landinu því
Lærir þá kannski að syngja

Arídú arídúradei, arídú arídáa
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
Eitt sumar á landinu bláa

Arídú arídúradei, arídú arídáa
Sem kóngur ríkti hann meður sóma og sann
Eitt sumar á landinu bláa



Credits
Writer(s): Dp, Jonas Arnason
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link