Hvítt drasl

Ég er svo sæt í framan,
svona vel saumuð saman.
Fæ mér smók, valíum,
ekkert nýtt að kjafta um.
Joss, Versels, Gaultier,
æ þú veist alveg hver hann er.
Ég geri' þetta sérhvern dag
og kem mínu fési í lag,
svo fæ ég mér smá í glas
og geng um með bros
svo enginn fatti neitt
ef ég er eitthvað þunglynd.
Í hárgreiðslu verð ég léttlynd,
djöfuls föt, fjandans vog,
pilla mér í fitusog.



Credits
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link