Frá Liðnu Vori
Fyrir þennan glugga hef ég gengið mörgum dögum
Hef gengið þar að morgni dags, en oftar seint á kvöldin
Og hikandi ég beið þess þar að bærðust gluggatjöldin
Og brjóst mitt hefur skolfið af þungum æðaslögum
Og hvítir armar birtust og hjartað brann af gleði,
Og hjartað brann af sorg ef þeir fólu sig í skuggann
Því hún var bara fimmtán ára og fyrir innan gluggann
Og fallegust af öllu því sem nokkru sinni skeði
Og vorið kom í maí, eins og vorin komu forðum
Með vængjaþyt og sólskin og næturkyrrð og angan
Og kvöld eitt niðri á bryggju hún kyssti mig á vangann
Það kvöld gekk lítið hjarta í fyrsta sinn úr skorðum
Já, skrýtið er að hafa verið ungur einu sinni
Og að það skuli hafa verið þessi sami heimur
Því þá var bara heimurinn handa okkur tveimur
En hitt var bara ástin sem brann í sálu minni
Og stundum enn, er byrjar að vora um vesturbæinn
Mér verður á að reika þangað einsömlum á kvöldin
En aldrei framar hvítir armar hreyfa gluggatjöldin
Og húsið verður sjálfsagt rifið einhvern næsta daginn

Credits
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
© 2024 All rights reserved. Rockol.com S.r.l. Website image policy
Rockol
- Rockol only uses images and photos made available for promotional purposes (“for press use”) by record companies, artist managements and p.r. agencies.
- Said images are used to exert a right to report and a finality of the criticism, in a degraded mode compliant to copyright laws, and exclusively inclosed in our own informative content.
- Only non-exclusive images addressed to newspaper use and, in general, copyright-free are accepted.
- Live photos are published when licensed by photographers whose copyright is quoted.
- Rockol is available to pay the right holder a fair fee should a published image’s author be unknown at the time of publishing.
Feedback
Please immediately report the presence of images possibly not compliant with the above cases so as to quickly verify an improper use: where confirmed, we would immediately proceed to their removal.