Sumargestur

Fuglinn minn úr fjarska ber
fögnuð vorsins handa mér.
Yfir höfin ægibreið,
ævinlega – flýgur rétta leið.

Tyllir sér á græna grein,
gott að hvíla lúin bein.
Ómar söngur hjartahlýr.
Hlusta ég á – lífsins ævintýr.

Fús ég þakka fuglinn minn
fyrir gleðiboðskapinn;
þessa ljúfu tæru tóna, tóna

Þegar haustar aftur að,
af einlægni ég bið um það,
að mega syngja sönginn þinn,
sumargestur, – litli fuglinn minn.

Fús ég þakka fuglinn minn
fyrir gleðiboðskapinn;
þessa ljúfu tæru tóna, tóna.

Þú átt athvarf innst í sál,
ó, að ég kynni fuglamál,
skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.



Credits
Writer(s): Asgeir Einarsson, Gudmundur Kristinn Jonsson, Einar Georg Einarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link