Í næsta lífi

Sá nashyrningahjörð
í amerískum fötum
þambandi úr glösum
standandi í röð í
Bankastræti

dýragarðabörn
klædd í Adidas
með jónur sem að líta út eins og fajitas
er þetta real life?
ég er fucked
verð að banka í strætið

bærinn hann iðar af lífi
eins og smábarn með njálg
allir að fá sér
og spólgraðir táningar
sem vaða í ógrynni klám upp að hnjám (ojj)

og ég er tæpur
sit með munnræpu á knæpu
mæðurnar læs'inni dætur
sem læs'inni mæður
og báðar þær læðast svo hingað um nætur

djöfull er ég nettur
ég er nettasti náunginn á plánettunni jörð
þarf alltaf að vera vín
að sjálfsögðu nörd

svo mikið af drykkjarvörum á mínum vörum
að ég verð að fara á börum út af börum

en mér er sama
því að
satt best að segja er ennþá gaman
því að
ég er ennþá að þamba tequila
ég er ennþá á fokking lífi, mamma mía

með bein og fleira í nefinu
veist að ég stend mig í stykkinu
þar til ég hrekk upp, en dömpið svo líkinu
í tunnunni, kompunni, portinu á Prikinu

ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig
endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!)
næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!)

áður en þú veist að við neyslan
hættu að vera veisla
beislaðu púkann bruv', beislaðann
áður en þú veist að við neyslan
hætt að vera veisla
beislaðu púkann bruv', beislaðann

sá nashyrningahjörð
í amerískum fötum
þambandi úr glösum
standandi í röð á
Laugarveginum

hér er bara hlaupið með nautnunum
miðað við þá allra blautustu
þá það mætti halda að það væri
laug á veginum

en þetta eru engar hyllingar
fokk it, ég judge'a ekki
en ég er líka til í allt

spinnegal unglingar
og fullorðnir villingar
það skemmir ekki við
við að skvetta smá af bensíni á bálið mitt
funheitur, alelda, sódóma, Stefán í sálinni

sá nashyrningahjörð
klukkann rassgat
en hún er ekk'á leiðinni neitt neitt
rymjandi og brosandi eins og eimreið
ógnandi þeim sem að leið um Hverfisgötuna

það er meittlað í stein
þegar maður er meyr
fær maður sér meir
þegar maður er meyr
fær maður sér meir
svo deyr
og hverfur í götuna

en það er lífshlaup
sem myndi ekki bragðast vel
svo ég blanda mér bara annan hanastél
fer á diskótek og disco tek
ég neita að haga mér

mamma sagði við mig
gakkt út um gleðinnar dyr
ekki drekka of mikið
ekki sofna í sygtið
sorry mamma, sparka upp hurðinni
og byrja að hella í mig
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig
endilega reyndu aftur í næsta lífi
næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig
endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!)
næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig
svo fokking farinn það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!)



Credits
Writer(s): ágúst Bent Sigbertsson, Lúðvík Páll Lúðvíksson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link