Brosa

Stend hér oft og stari í spegilinn
Ykkur kæmi á óvart hvað ég finn
Ungan dreng með margar spurningar
Oftar en ekki hef eg ekkert svar

Kiki inna instagram
Hvað er það sem her fer fram
Eg er orðinn einn af þeim sem er alltaf að dæma

Keyri um a flottum bil
Passa að fötin seu i stil

Búinn að týna sjálfum mér en reyni hvað ég get að

Brosa

Við byrjum góða hluti með að brosa

Geng í gegnum misjöfn tímabil
Oftar en ekki, veit ég ekkert hvað ég vil
Finnst allir vera að eltast við það sama
Í það minnsta peninga frægð og frama

Ætti að horfa betur í kringum mig
Segja þér ég elska þig
Það eru okkar nánustu sem skipta mestu máli.

Tækifæri allsstaðar
Leyfðu mér að vera þar
Þar sem þú ert því þú færð mig alltaf til að

Brosa

Við byrjum góða hluti með að brosa

Góðir dagar komnir enn á ný
Komu því ég fór að trúa því
Ég varð að gefa meira af sjálfum mér
Það er ég sem ákveð hvert ég fer

Að hamingjunni leitum öll
Hugurinn hann flytur fjöll
Hafðu trú á sjálfum þér og taktu næsta skref

Lifum lífinu lifandi
Klukkan alltaf tifandi
Hafðu trú á sjálfri þér og leyfðu mér að sjá þig
Brosa

Við byrjum góða hluti með að brosa



Credits
Writer(s): Fannar Freyr Magnusson, Gudmundur Thorarinsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link