Ég Og Þú

Fannstu ekki fiðringinn
er játandi faðmurinn
og dúnamjúk snertingin
kitluðu þig?

Voru það rifrildin?
Niðdimmur veturinn?
Olli ég vonbrigðum?
Hefurðu sett í lás?

Ég og þú
snúm við
Trúum að við verðum hvað sem verður
ég og þú

Ég vil afturkalla
ást vegna formgalla
fékk ekki framkallað
því sem að mér var lofað

Ég og þú
snúum við
Trúum að við verðum hvað sem verður
ég og þú

Dró ég þig niður á við
undir yfirborðið?
Var reglunum riðlað?
Villtistu af leið?

Ég og þú
snúum við
Trúum að við verðum hvað sem verður
ég og þú



Credits
Writer(s): David Gudbrandsson, Solborg Gudbrandsdottir, Tomas Helgi Wehmeier
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link