Orna

Komdu, ég skal orna þér við eldinn minn
Leggðu ennið að hjarta mér, horfðu inn
Er hann ekki notalegur ylurinn
Vertu nú rólegur vinur minn

Ég fann engan speking svo spakan að spár hans reyndust
Reyndust ei hjóm

Og engan lækni, lækni svo lærðan að lífgað gæti
Visnuð blóm

Er hann ekki notalegur ylurinn
Vertu nú rólegur vinur minn

Bræðir hann ekki ísgervi þitt
Logaðu logaðu
Litla hjartað mitt



Credits
Writer(s): David Fra Fagraskogi Stefansson, Teitur Magnusson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link