Skriftargangur

Prestur með pokarass
Áttu ekki dropa vatns
að selja mér til sunnudags
Ég hef stolið mör úr ám
bæði svörtum og grám
ég hef stolið mókollóttum hrúti
svo er þessi skriftargangur úti

ég hef sögu að segja þér
segð' hana ekki eftir mér
syndir mínar segi ég þér
segð'ær ekki eftir mér

Pusher með pokarass
áttu ekki hluta grams
að kríta á mig til mánudags
ég hef stolið flatskjám úr gám
bæði hvítum og blám
ég fann eitt sinn lögg á kúti
sumarið sem ég lá úti



Credits
Writer(s): Dp, Dp Dp, Teitur Magnusson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link