Sloppurinn

Ég er með hvítan silkislopp
í kassa upp í stiga

og hann lyktar eins og þú

ég gæti haft hann til þegar
þú ert tilbúin að kíkja við og hitta mig

Lykillinn er undir mottunni

en það kemur ekki nokkrum við
bara þú og ég og sloppurinn

Við gætum borðað ristabrauð
og hellt upp á kaffi og svo kannski drukkið
það saman upp í sófa undir teppi,
ég á stuttbuxum, þú í hvíta sloppnum

Lykillinn er undir mottunni búinn að snúa
sólarhringnum við bara þú og ég og sloppurinn.



Credits
Writer(s): Teitur Magnusson, Bjarni Daniel Thorvaldsson, Daniel Fridrik Bodvarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link