Síðasta Tækifærið

Tækifærið birtist
yfirgefið eitt.
Ég var annars hugar
eins og yfirleitt.
Lét það fara,
en áður en það hvarf
það hvíslaði að mér:
"Komd'og náð'í mig,
ég er.
Komd'og náð'í mig,
ég fer.
Komd'og finndu mig."

Loksins kom það aftur
eftir langa bið.
En um leið þó sýndi
á sér fararsnið.
Og það hvaddi,
í sömu andránni það hvíslaði að mér:
"Komd'og náð'í mig,
ég fer.
Komd'og náð'í mig,
frá þér.
Komd'og finndu mig."

Það hefði dugað lítið augnatillit,
einhver hreyfing,
útrétt höndin.
Það var að bíða eftir einu orði,
andardrætti,
ekkert gerðist.
Það fór.
Það fór.
Það fór.

Tækifærið birtist
yfirgefið eitt.
Ég var annars hugar
eins og yfirleitt.
Lét það fara,
en áður en það hvarf
það hvíslaði að mér:
"Komd'og náð'í mig,
ég er.
Komd'og náð'í mig,
ég fer.
Komd'og finndu mig."



Credits
Writer(s): Thorvaldur B Thorvaldsson, Fridrik Sturluson, Gudmundur Jonsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link