Hvað ef ég get ekki elskað?

Það á að vera sjálfsagt
talið ósköp eðlilegt
og á allra færi
en ég get ekki að því gert.
Þau segja mér hætt þessu drengur
allir finni sína leið.
En ég stend einn í neyð.

Hvað ef ég get ekki elskað, ekki elskað neinn?
Af öllum þunga, með hjarta og lunga, finna allur til?
Segið mér hvað ef ég get ekki elskað neinn?
Ekki neinn?

Það er eitthvað brotið
eitthvað brotið inn í mér.
En sárin gróa og ég skil þau eftir hér.
Þau segja mér hætt þessu drengur
allir finni sína leið.
En ég stend einn í neyð.

(Ég spyr) hvað ef ég get ekki elskað, ekki elskað neinn?
Af öllum þunga, með hjarta og lunga, finna allur til?
Segið mér hvað ef ég get ekki elskað neinn?

Er ég einn þessum sporum í
ég á bágt með að trúa því
ég heyri hætt þessu drengur
en hrópa út í neyð!

Ég get ekki elskað neinn.
Ég get ekki elskað neinn.

Er ég einn þessum sporum í
ég á bágt með að trúa því.



Credits
Writer(s): Friðrik ómar Hjörleifsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link