Allt er hljótt

Ég lofsama þig og læðist að þér.
Laum'á þig kossi er þú sefur rótt.
Langar að hvíla þér hjá, aldrei víkja frá.
Nú allt er hljótt.

Barmafullt hjarta mitt fær ekki skilið,
Hve fegurð þín er fölskvalaus, er þú sefur rótt.
Þú fullkomna vera!
Ég vernda þig mun - dag sem nótt.
Allt er hljótt.

Mánaljós silfrað talar nú við mig.
Glitrandi glampi frá stjörnunum skín.
Svo skammt er síðan, ég þig ekki þekkti.
Svo takmarkalaus
Er ást mín til þín.

Ég dásama þig, dáist að þér.
Allt er svo hljótt.
Sofðu rótt.



Credits
Writer(s): Holmfridur Osk Samuelsdottir
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link