Haustljóð

Haustljóð
Davíð Stefánsson

Ljúfasta stundin er löngu horfin og liðið að hausti
Skjálfa viðir, en skipið fúnar skorðað í nausti

Og sorgin læðist í svörtum slæðum um sölnuð engi
Blöðin hrynja í bleikum skógum á brostna strengi

Löng er nóttin og nístingsköld við niðandi ósa
Hjartað stinga hélaðir þyrnar heilagra rósa



Credits
Writer(s): Davíð Stefánsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link