Hornafjörður

Hornafjörður
Skarphéðinn Þorkelsson

Heill þér aldni Hornafjörður, heill sé þér um alla tíð, himnadrottinn veri vörður vega þinna ár og síð
Gimsteinn ertu á grænu klæði greyptur inn í jöklahring
Flyt ég þér mitt fyrsta kvæði fegurð þinni lofgjörð syng

Fagra sveit í faðmi þínum frelsi og gleði una sér, lundhýr börn að leikjum sínum, litprúð blóm og fuglaher
Ekkert veit ég unaðslegra en að mega vaka hér, horfa á lífið hreinna, fegra, hallast upp að brjósti þér

Þennan reit með roða á vanga, röðulskin á aftanstund, elskum vér um æfi langa, eins þótt stormar næði grund.
Hér um aldur vil ég vera vinna allt til sólarlags, hérna vil ég beinin bera, bíða í gröf til efsta dags



Credits
Writer(s): Skarphéðinn þorkelsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link