Oceanika

Í útsæ augna þinna ég kasta mér
Leyfðu mér að dvelja þar
Líkt og spor á ströndu, illa leikin af hafinu
Útmáð en ekki horfin, er minning mín um þig

Nú er ég á leið heim
Dvalarstað ætla að finna
Munt þú mig þekkja?

Ég heyrði rödd þína og hlátur í dag
Skynjarðu komu mína?
Þú lagðir álög á mig
Er það óskhyggja að þú munir mig?

Ég kasta mér í djúp augna þinna
Sæinn lygna og og víðfeðma
Þar vil ég synda um ókomna tíð, og vera

Í útsæ augna þinna ég kasta mér
Leyfðu mér að dvelja þar



Credits
Writer(s): Einar Teitur Bjoernsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link