Ástin í dauðanum

Dimmgrár rakinn hylur mig
Mun ég rata úr þokunni?
Kvíðinn býr í hjartanu
Mun ég finna leiðina heim?

Á villigötum leiddumst við
Einsömul og óttaslegin
Með sting í brjóstinu
Og óvissu í maganum
Ég leit í augu hennar og sleppti

Með von um betri dag
Er laufin dansa í golunni
Og gráminn hopar
Og sólin kyssir hafflötinn

Hinar sönnu breytingar
Einskorðast við ást og dauða
Einskorðast við ást og dauða

Kvíðinn býr í hjartanu
Ástin lifir í dauðanum
Ástin lifir í dauðanum



Credits
Lyrics powered by www.musixmatch.com

Link